
Fjarstillingar
Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Sími
>
Stj. tækis
.
Með stjórnanda tækis er hægt að stjórna stillingum, gögnum
og hugbúnaði í tækinu úr fjarlægð.
Þú getur tengst miðlara og fengið sendar stillingar fyrir tækið
þitt. Þú getur fengið miðlarasnið og mismunandi stillingar
frá þjónustuveitunni þinni eða upplýsingadeild. Stillingarnar
kunna að innihalda tengistillingar og aðrar stillingar fyrir
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
125

mismunandi forrit í tækinu. Mismunandi getur verið hvaða
valkostir eru í boði.
Fjarstillingartengingin er venjulega ræst af miðlaranum
þegar uppfæra þarf stillingar tækisins.
Til að búa til nýtt miðlarasnið skaltu velja
Valkostir
>
Miðlarasnið
>
Valkostir
>
Nýtt miðlarasnið
.
Þú færð e.t.v. þessar stillingar frá þjónustuveitanda þínum í
stillingarboðum. Ef ekki skaltu skilgreina eftirfarandi:
•
Nafn miðlara
— Færðu inn heiti stillingamiðlarans.
•
Auðkenn.nr. netþjóns
— Færðu inn auðkenni
stillingamiðlarans.
•
Lykilorð miðlara
— Sláðu inn lykilorð til að miðlarinn
beri kennsl á tækið þitt.
•
Gerð tengingar
— Veldu tegund tengingar.
•
Aðgangsstaður
— Veldu aðgangsstað sem nota á með
tengingunni, eða búðu til nýjan aðgangsstað. Þú getur
einnig valið að beðið sé um aðgangsstað í hvert sinn sem
þú tengist. Þessi stilling er aðeins í boði ef þú hefur valið
Internet
sem gerð flutningsmáta.
•
Heimaveffang
— Færðu inn veffang stillingamiðlarans.
•
Gátt
— Færðu inn gáttarnúmer miðlarans.
•
Notandanafn
og
Lykilorð
— Sláðu inn notandanafnið og
aðgangsorðið að stillingamiðlaranum.
•
Leyfa stillingar
— Veldu
Já
til að leyfa miðlaranum að
hefja stillingalotu.
•
Samþ. allar sjálfkrafa
— Veldu
Já
ef þú vilt ekki að
miðlarinn biðji þig um staðfestingu þegar hann hefur
stillingalotu.
•
Sannvottun símkerfis
— Veldu hvort nota á http-
sannvottun.
•
Notandanafn símkerfis
og
Lykilorð símkerfis
— Sláðu
inn notandanafn og aðgangsorð fyrir http-sannvottun.
Þessi stilling er aðeins í boði ef þú hefur valið að nota
Sannvottun símkerfis
.
Til að tengjast miðlaranum og taka við stillingum fyrir tækið
þitt velurðu
Valkostir
>
Hefja stillingu
.
Til að skoða stillingaskrá valins sniðs velurðu
Valkostir
>
Skoða notk.skrá
.
Til að uppfæra hugbúnað tækisins með ljósvakaboðum
velurðu
Valkostir
>
Leita að uppfærslum
. Uppfærslan
eyðir ekki stillingum þínum. Þegar þú móttekur
uppfærslupakkann í tækinu skaltu fylgja leiðbeiningunum á
skjánum. Tækið er endurræst þegar uppsetningunni er lokið.
Það að hlaða hugbúnaðaruppfærslum getur falið í sér stórar
gagnasendingar (sérþjónusta). Gættu að því að rafhlaða
tækisins hafi næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið áður en
uppfærslan er ræst.
Viðvörun: Ekki er hægt að nota tækið meðan á
hugbúnaðaruppfærslu stendur, jafnvel ekki til að hringja
neyðarsímtöl. Aðeins er hægt að nota það að uppfærslunni
lokinni og þegar það hefur verið endurræst. Taka skal
öryggisafrit af gögnum áður en uppfærsla er samþykkt.