
Tækinu læst
Láskóðinn kemur í veg fyrir að óviðkomandi noti tækið þitt.
Forstillta númerið er 12345.
Til að læsa tækinu ýtirðu á rofann á heimaskjánum og velur
Læsa síma
.
Til að opna tækið velurðu
Úr lás
, slærð inn láskóðann og velur
Í lagi
.
Láskóðanum er breytt með því að velja
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Stillingar
og
Almennar
>
Öryggi
>
Sími
og SIM-kort
. Sláðu inn gamla kóðann og síðan nýja kóðann
tvisvar. Nýi kóðinn má vera 4-255 stafa langur. Hægt er að
nota bæði tölu- og bókstafi og há- og lágstafi.
Skrifaðu niður nýja kóðann og geymdu hann á öruggum stað,
fjarri tækinu. Ef þú gleymir láskóðanum og tækið læsist skaltu
fara með það til viðurkennds þjónustuaðila Nokia.
Hugsanlega þarf að borga fyrir slíka þjónustu. Til að opna
tækið verður að setja hugbúnaðinn upp aftur og því glatast
mögulega gögn sem voru vistuð í tækinu.
Einnig er hægt að læsa tækinu án þess að hafa það við
höndina með því að senda textaskilaboð í það. Kveikt er á ytri
læsingu og texti fyrir skilaboð hennar tilgreindur með því að
velja
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Stillingar
og
Almennar
>
Öryggi
>
Sími og SIM-kort
>
Ytri símalæsing
>
Kveikt
.
Sláðu inn skilaboð ytri læsingar og staðfestu skilaboðin.
Skilaboðin verða að vera a.m.k. 5 stafir að lengd. Skrifaðu
textann niður, það gæti komið sér vel síðar.