Nokia E55 - Vottorðastjórnun

background image

Vottorðastjórnun

Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Almennar

>

Öryggi

>

Vottorðastjórnun

.

Stafræn vottorð eru notuð til að staðfesta uppruna

hugbúnaðar en tryggja ekki öryggi. Um fjórar tegundir

vottorða er að ræða: heimildavottorð, einkavottorð, vottorð

traustra síðna og tækjavottorð. Ef tengingin er örugg getur

verið að miðlari sendi vottorð í tækið. Þegar vottorðið er

móttekið er það sannvottað af heimildavottorði sem er vistað

í tækinu. Látið er vita ef uppruni miðlarans er ekki staðfestur

eða ef ekki er rétt vottorð í símanum.
Þú getur sótt vottorð á vefsvæði eða móttekið vottorðið sem

skeyti. Nota ætti vottorð þegar senda á trúnaðarupplýsingar

til netbanka eða miðlara. Einnig ætti að nota þau til að

minnka hættuna á vírusum eða öðrum skaðlegum hugbúnaði

og tryggja áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið er niður af

netinu og settur upp í tækinu.

Ábending: Þegar nýju vottorði er bætt við skal

sannvotta uppruna þess.