Nokia E55 - VPN f. fars.

background image

VPN f. fars.

Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Tenging

>

VPN

.

Nokia VPN-netforrit fyrir farsíma (virtual private network)

kemur á öruggri tengingu við samhæft innra net fyrirtækis

og þjónustu, eins og tölvupóst. Tækið þitt tengist internetinu

með farsímakerfinu og tengist þannig VPN-gátt sem veitir

aðgang að samhæfu innra neti fyrirtækisins. VPN-forritið

notar IPSec-tækni (IP Security). IPSec er rammi opinna staðla

til að tryggja örugg gagnaskipti yfir IP-net.
VPN-stefnur skilgreina aðferðina sem VPN-forritið og VPN-

gáttin nota til að sannvotta hvort annað, og

dulkóðunaralgrímin sem þau nota til að tryggja leynda

gagnanna. Leitaðu frekari upplýsinga um VPN-stefnur í

tæknideild fyrirtækis þíns.
Til að setja upp og stilla VPN-forritið, vottorð og stefnur skaltu

hafa samband við stjórnanda upplýsingatækni í fyrirtækinu.