
Úrræðaleit
Á þjónustusíðunum á vefsíðu Nokia má sjá svör við algengum
spurningum um tækið.
Spurning: Hvert er læsingar-, PIN- eða PUK-
númerið mitt?
Svar: Sjálfgefinn númerakóði læsingar er 12345. Hafðu
samband við söluaðilann ef þú týnir eða gleymir
læsingarnúmerinu. Ef þú gleymir eða glatar PIN- eða PUK-
númeri, eða ef þú hefur ekki fengið slíkt númer, skaltu hafa
samband við þjónustuveituna.
Spurning: Hvernig loka ég forriti sem er frosið, þ.e.
svarar ekki?
Svar: Haltu heimatakkanum inni. Flettu að forritinu og ýttu á
bakktakkann til að loka forritinu.
Spurning: Af hverju virðast myndir vera óskýrar?
Svar: Gakktu úr skugga um að hlífðargler
myndavélarlinsunnar séu hrein.
Spurning: Hvers vegna sjást daufir, upplitaðir eða
skærir punktar á skjánum í hvert skipti sem ég
kveiki á tækinu?
Svar: Þetta er einkennandi fyrir þessa gerð af skjám. Á sumum
skjám geta verið dílar eða punktar sem lýsa annaðhvort
stöðugt eða alls ekki. Hér er ekki um að ræða galla heldur
eðlilegan hlut.
Spurning: Af hverju finn ég ekki tæki vinar míns
þegar ég nota Bluetooth?
Svar: Gakktu úr skugga um að tækin séu samhæf, að kveikt
sé á Bluetooth og tækin séu sýnileg. Gakktu einnig úr skugga
um að fjarlægðin á milli tækjanna tveggja sé ekki meiri en 10
metrar (33 fet) og að ekki séu veggir eða aðrar hindranir á
milli þeirra.
Spurning: Af hverju get ég ekki slitið Bluetooth-
tengingu?
Svar: Ef annað tæki er tengt við tækið þitt getur þú slitið
tengingunni í hinu tækinu eða slökkt á Bluetooth í tækinu
þínu. Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Tenging
>
Bluetooth
og
Bluetooth
>
Slökkt
.
Spurning: Hvers vegna get ég ekki séð WLAN-
aðgangsstað þó svo ég viti að ég er innan
móttökusvæðis hans?
Svar: Gakktu úr skugga um að sniðið án tengingar sé ekki í
notkun í tækinu.
Verið getur að aðgangsstaðurinn noti falinn SSID-kóða. Þú
getur aðeins fengið aðgang að netkerfum sem nota falinn
SSID-kóða ef þú veist kóðann og hefur búið til WLAN-
aðgangsstað í Nokia-tækinu þínu.
Gakktu úr skugga um að WLAN-aðgangsstaðurinn sé ekki á
rásum 12-13 þar sem ekki er hægt að tengja þær við hann.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
151

Spurning: Hvernig slekk ég á WLAN í Nokia tækinu
mínu?
Svar: Tengingin við þráðlausa staðarnetið rofnar við Nokia
tækið þegar þú ert ekki að reyna að tengjast eða ert ekki með
tengingu við annan aðgangsstað eða að leita að tiltæku
netkerfi. Til að draga enn frekar úr rafhlöðueyðslu er hægt að
stilla Nokia-tækið þannig að það leiti ekki eða leiti sjaldnar
að tiltækum netkerfum í bakgrunni. Það slokknar á þráðlausa
staðarnetinu milli þess sem leit fer fram í bakgrunni.
Slökkt er á bakgrunnsleit með því að velja
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Stillingar
og
Tenging
>
Þráðl. staðarnet
>
Sýna vísi staðarneta
>
Aldrei
. Áfram er hægt að leita
handvirkt að tiltækum WLAN og tengjast þeim eins og
vanalega.
Til að auka tíma bakgrunnsleitar velurðu
Sýna vísi
staðarneta
>
Já
og svo tímann í
Leitað að staðarnetum
.
Spurning: Af hverju get ég ekki farið á vefinn þrátt
fyrir að WLAN-tenging virki og IP-stillingarnar séu
réttar?
Svar: Gakktu úr skugga um að þú hafir tilgreind réttar HTTP/
HTTPS proxy-stillingar í frekari stillingum WLAN-
aðgangsstaðarins.
Spurning: Hvernig kanna ég gæði undirskriftarinnar í
WLAN-tengingunni minni? — Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Tenging
>
Stj. teng.
og
Virkar
gagnatengingar
>
Valkostir
>
Upplýsingar
. Ef
sendigæðin eru lítil eða miðlungsgóð gætirðu lent í
vandræðum með að tengjast. Reyndu aftur nær
aðgangsstaðnum.
Spurning: Af hverju á ég í vandræðum með
öryggisstillinguna?
Svar: Gakktu úr skugga um að öryggisstillingin sé rétt og sú
sama og netkerfið notar. Til að sjá hvaða öryggisstillingu
netkerfið notar velurðu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Tenging
>
Stj. teng.
og
Virkar gagnatengingar
>
Valkostir
>
Upplýsingar
.
Kannaðu einnig eftirfarandi: þú notar rétta WPA-stillingu
(fordeildur lykill eða EAP), þú hefur slökkt á öllum EAP-
gerðum sem ekki eru nauðsynlegar og allar EAP-stillingar eru
réttar (lykilorð, notendanafn, vottorð).
Spurning: Af hverju get ég ekki valið tengilið fyrir
skilaboðin mín?
Svar: Tengiliðaspjaldið inniheldur hvorki símanúmer,
vistfang né tölvupóstfang. Veldu
Valmynd
>
Tengiliðir
, og
breyttu tengiliðaspjaldinu.
Spurning: Textinn Sæki skilaboð birtist í stutta
stund. Hvað er að gerast
Svar: Tækið er að reyna að sækja margmiðlunarskilaboð frá
skilaboðastöðinni. Textinn sést ef þú hefur valið
Valmynd
>
Skilaboð
og
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlunarboð
>
Móttaka margmiðlunar
>
Alltaf
sjálfvirk
. Gakktu úr skugga um að stillingar fyrir
margmiðlunarboð séu rétt valdar og að símanúmer og
vefföng séu rétt.
Spurning: Hvernig get ég lokað gagnatengingu
sem tækið kemur alltaf á aftur?
Svar: Tækið gæti verið að reyna að sækja
margmiðlunarskilaboð frá skilaboðastöðinni. Til að koma í
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
152

veg fyrir að tækið komi á gagnatengingu skaltu velja
Valmynd
>
Skilaboð
og
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlunarboð
>
Móttaka margmiðlunar
>
Handvirkt val
til að skilaboðamiðstöðin visti skilaboð sem
verða sótt síðar eða
Óvirk
til að hunsa öll
margmiðlunarskilaboð sem berast. Ef þú velur
Handvirkt
val
færðu tilkynningu um að ný margmiðlunarskilaboð bíði
þín í skilaboðamiðstöð margmiðlunarboða. Ef þú velur
Óvirk
kemur tækið aldrei á tengingu við símkerfið vegna
margmiðlunarskilaboða.
Til að láta tækið aðeins nota pakkagagnatengingu ef þú ræsir
forrit eða aðgerð sem þarfnast hennar velurðu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Stillingar
og
Tenging
>
Pakkagögn
>
Pakkagagnatenging
>
Ef með þarf
.
Ef þetta hjálpar ekki skaltu slökkva á tækinu og kveikja á því
aftur.
Spurning: Hvernig spara ég rafhlöðuna?
Svar: Margar aðgerðir tækisins auka orkuþörf og draga úr
líftíma rafhlöðunnar. Til að spara rafhlöðuna skaltu gera
eftirfarandi:
• Slökktu á Bluetooth þegar þú notar það ekki.
• Stöðvaðu bakgrunnsleit að WLAN. Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Stillingar
og
Tenging
>
Þráðl.
staðarnet
>
Sýna vísi staðarneta
>
Aldrei
. Áfram er
hægt að leita handvirkt að tiltækum WLAN og tengjast
þeim eins og vanalega.
• Stilltu tækið þannig að það noti aðeins
pakkagagnatengingu ef forrit eða aðgerð sem þarf á henni
að halda er ræst. Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Stillingar
og
Tenging
>
Pakkagögn
>
Pakkagagnatenging
>
Ef með þarf
.
• Lokaðu á sjálfvirkt niðurhal nýrra korta í kortaforritinu.
Veldu
Valmynd
>
Forrit
>
GPS
>
Kort
og
Valkostir
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Internet
>
Nettenging við
ræsingu
.
• Breyttu tímanum sem líður þar til slökkt er á
baklýsingunni. Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Stillingar
og
Almennar
>
Sérstillingar
>
Skjár
>
Tímamörk ljósa
.
• Lokaðu forritum sem þú ert ekki að nota. Haltu
heimatakkanum inni. Flettu að forritinu og ýttu á
bakktakkann til að loka forritinu.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
153