Nokia E55 - Um staðsetningaraðferðir

background image

Um staðsetningaraðferðir

Kort birta staðsetningu þína á kortinu með GPS, A-GPS eða

samkvæmt sendi.
GPS-kerfið (Global Positioning System) byggir á gervitunglum

sem eru notuð til að reikna út staðsetningu þína. A-GPS

(Assisted GPS) er netkerfisþjónusta þar sem þú færð send GPS-

gögn, og sem bætir hraða og nákvæmni staðarákvarðana.
Þegar þú notar Korta-forritið í fyrsta skipti er spurt hvort þú

viljir tilgreina netaðgangsstað til að geta hlaðið niður

kortaupplýsingum eða hvort þú viljir nota A-GPS.

táknar styrk gervihnattarmerkja. Eitt strik

merkir einn gervihnött. Strikið er gult þegar tækið leitar að

gervitunglum. Strikið verður grænt þegar næg gögn eru til

staðar til að reikna út staðsetningu þína. Útreikningur á

staðsetningu verður nákvæmari eftir því sem grænu strikin

eru fleiri.
GPS-kerfið (Global Positioning System) er rekið af

Bandaríkjastjórn sem ber alla ábyrgð á nákvæmni þess og

viðhaldi. Nákvæmni staðsetningargagna kann að verða fyrir

áhrifum af breytingum á GPS-gervihnöttum sem gerðar eru

af Bandaríkjastjórn og kann að breytast í samræmi við stefnu

varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um borgaralegt GPS og

alríkisáætlun um þráðlausa leiðsögu. Slæm rúmfræði

gervihnatta getur einnig haft áhrif á nákvæmni. Staðsetning,

byggingar, náttúrulegar hindranir auk veðurskilyrða kunna

að hafa áhrif á móttöku og gæði GPS-merkja. Verið getur að

GPS-merki náist ekki inni í byggingum eða

neðanjarðargöngum og þau geta orðið fyrir áhrifum frá

efnum eins og steypu og málmi.
Ekki ætti að nota GPS fyrir nákvæmar staðsetningarmælingar

og aldrei ætti að treysta eingöngu á staðsetningargögn frá

GPS-móttakaranum og símkerfi fyrir staðsetningu eða

leiðsögn.
Áreiðanleiki áfangamælisins er ekki fullkominn og

sléttunarvillur eru mögulegar. Nákvæmnin veltur einnig á

móttöku og gæðum GPS-merkja.
Með staðarákvörðun samkvæmt sendi er staðsetningin

ákvörðuð samkvæmt þeim sendi sem farsíminn er tengdur

við.
Nákvæmni staðarákvörðunar getur verið allt frá nokkrum

metrum og upp í nokkra kílómetra, allt eftir því hvaða aðferð

er notuð.

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

77