Flett um síður
Smákort og Síðuyfirlit koma að gagni þegar vefsíður sem
innihalda mikið af upplýsingum eru skoðaðar.
Til að ræsa Smákort velurðu
Valkostir
>
Stillingar
>
Almennar
>
Smákort
>
Kveikt
. Þegar þú skoðar stóra
vefsíðu opnast Smákort og sýnir yfirlit yfir síðuna.
Flett er um smákort með því að fletta upp, niður, til hægri eða
vinstri. Hætt er að fletta þegar komið er að réttum stað.
Smákortið hverfur þá og staðurinn birtist.
Þegar þú ert að skoða vefsíðu sem inniheldur mikið af
upplýsingum geturðu einnig notað Síðuyfirlit til að sjá hvers
konar upplýsingar vefsíðan inniheldur.
Ýttu á 8 til að sjá yfirlit þeirrar vefsíðu sem er opin. Flettu upp
eða niður eða til hægri eða vinstri til að finna tiltekinn stað
á síðunni. Ýttu aftur á 8 til að auka aðdrátt og skoða tiltekinn
hluta síðunnar.