
Myndefnisþjónusta
Með Nokia Myndefnisþjónustunni (sérþjónusta) er hægt að
hlaða niður og straumspila myndskeið frá mismunandi
myndveitum með pakkagagnatengingu eða um þráðlaust
staðarnet (WLAN). Einnig er hægt að flytja myndskeið úr
samhæfri tölvu í tækið og skoða þau í Video centre.
Það getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi
þjónustuveitunnar að nota aðgangsstaði fyrir pakkagögn til
að hlaða niður hreyfimyndum. Upplýsingar um
gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.
Tækinu getur fylgt fyrirfram valin þjónusta.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
104

Þjónustuveitur geta ýmist boðið upp á ókeypis efni sem og
efni sem gjald er tekið fyrir. Kannaðu verðið hjá þjónustunni
eða þjónustuveitunni.