Myndskeiðin mín
Myndskeiðin mín er geymslustaður fyrir öll myndskeið í
myndveituforritinu. Hægt er að flokka myndskeið sem hefur
verið hlaðið niður og myndskeið sem tekin hafa verið með
myndavél tækisins, í sérstökum skjágluggum.
1. Til að opna möppu og skoða myndskeið skaltu nota
skruntakkann. Til að stjórna myndspilaranum þegar
myndskeiðið er spilað skaltu nota skruntakkann og
miðlunartakkana.
2. Hljóðstyrknum er breytt með því að ýta á
hljóðstyrkstakkann.
Veldu
Valkostir
og svo úr eftirfarandi:
•
Halda niðurhali áfram
— Halda niðurhali áfram sem hlé
hefur verið gert á eða sem hefur mistekist.
•
Hætta við niðurhal
— Hætta við niðurhal.
•
Um hreyfimynd
— Skoða upplýsingar um myndskeið.
•
Leita
— Leita að myndskeiði. Sláðu inn leitarorð sem
samsvarar skráarheitinu.
•
Sýna á heimaneti
— Spila myndskeið sem hlaðið hefur
verið niður í heimakerfinu. Stilla verður heimakerfið áður.
•
Minnisstaða
— Til að sjá hversu mikið minni er laust og
hversu mikið er í notkun.
•
Raða eftir
— Raða myndskeiðum. Veldu viðeigandi flokk.
•
Færa og afrita
— Færa eða afrita myndskeið. Veldu
Afrita
eða
Færa
og staðsetningu.