
Skoðun og niðurhal
myndskeiða
Tenging við kvikmyndaveitu
1. Veldu
Valmynd
>
Miðlar
>
Kvikm.banki
.
2. Til að tengjast þjónustu eða setja upp myndefnisþjónustu
velurðu
Bæta við nýrri þjónustu
og myndefnisþjónustu
af vörulistanum.
Myndskeið skoðað
Til að skoða efnið sem þjónustan býður upp á skaltu velja
Myndstraumar
.
Efni sumra myndefnisþjónusta er raðað í flokka. Veldu flokk
til að skoða myndskeið.
Hægt er að leita að myndskeiðum í þjónustunni með því að
velja
Leita að myndskeiðum
. Ekki er víst að allar þjónustur
bjóði upp á leit.
Hægt er að straumspila sumar hreyfimyndir en hlaða þarf
öðrum niður í tækið til að hægt sé að spila þær. Veldu
Valkostir
>
Sækja
til að hlaða niður hreyfimynd. Niðurhal
heldur áfram í bakgrunninum ef forritinu er lokað. Myndskeið
sem hlaðið er niður eru vistuð í Myndskeiðin mín.
Til að straumspila myndskeið eða skoða mynd sem hefur
verið hlaðið niður velurðu
Valkostir
>
Spila
. Hægt er að
stjórna spilaranum með valtökkum hans og skruntakkanum
meðan myndskeið er spilað. Notaðu á hljóðstyrkstakkann til
að stilla hljóðstyrkinn.
Viðvörun: Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur
skaðað heyrn. Hlusta skal á tónlist á hóflegum hljóðstyrk og
ekki halda tækinu nærri eyranu þegar kveikt er á
hátölurunum.
Veldu
Valkostir
og svo úr eftirfarandi:
•
Halda niðurhali áfram
— Halda niðurhali áfram sem hlé
hefur verið gert á eða sem hefur mistekist.
•
Hætta við niðurhal
— Hætta við niðurhal.
•
Sýnishorn
— Forskoða myndskeið. Þessi valkostur er í
boði ef þjónustuveitan styður hann.
•
Um straum
— Skoða upplýsingar um myndskeið.
•
Uppfæra lista
— Uppfæra lista yfir myndskeið.
•
Opna tengil í vafra
— Opna tengil í vafranum.
Niðurhal tímasett
Ef forritið er stillt þannig að það sæki myndskeið sjálfkrafa
getur slíkt falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi
þjónustuveitunnar. Hafðu samband við þjónustuveituna til
að fá frekari upplýsingar um gagnaflutningsgjöld. Hægt er að
tímasetja sjálfvirkt niðurhal myndskeiða í þjónustu með því
að velja
Valkostir
>
Áætluð niðurhöl
. Video centre hleður
daglega niður nýjum myndskeiðum sjálfvirkt á þeim tíma
sem þú tilgreinir.
Til að hætta við tímasett niðurhal skaltu velja
Handvirkt
niðurhal
.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
105