
Lag spilað
Til að bæta öllum tiltækum lögum við tónlistarsafn velurðu
Valkostir
>
Uppfæra safn
.
Til að spila lag velurðu viðkomandi flokk og svo lagið.
Hlé er gert á spilun með því að ýta á skruntakkann og henni
er haldið áfram með því að ýta á takkann aftur. Spilun er
stöðvuð með því að fletta niður.
Skruntakkanum er ýtt til vinstri eða hægri og haldið inni til
að spóla áfram eða til baka.
Farið er áfram í næsta hlut með því að fletta til hægri. Farið
er í upphaf hlutarins með því að fletta til vinstri. Til að hoppa
yfir í fyrri hlutinn flettirðu aftur til vinstri innan 2 sekúndna
eftir að lag hefst.
Hljóminum er breytt með því að velja
Valkostir
>
Tónjafnari
.
Til að breyta hljómburðinum og steríóstillingunni eða auka
bassann velurðu
Valkostir
>
Stillingar
.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
107

Til að fara aftur á heimaskjáinn og láta spilarann vera í gangi
í bakgrunninum skaltu ýta á endatakkann.