Heimaskjár
Á heimaskjánum geturðu opnað þau forrit sem þú notar mest
og séð hvort þú hafir misst af símtölum eða fengið ný
skilaboð.
Þegar þú sérð táknið flettirðu til hægri til að nálgast lista
yfir tiltækar aðgerðir. Listanum er lokað með því að fletta til
vinstri.
Heimaskjárinn inniheldur
eftirfarandi:
1. Flýtivísar forrita. Veldu
flýtivísun forrits til að opna
það.
2. Upplýsingasvæði. Til að athuga
hlut sem birtist á
upplýsingasvæðinu velurðu
hann.
3. Tilkynningasvæði. Til að skoða
tilkynningar skaltu fletta að
hólfi. Hólfin eru aðeins sýnileg
ef atriði eru í þeim.
Þú getur tilgreint tvo mismunandi heimaskjái fyrir
mismunandi tilgang, til dæmis einn skjá til að sýna
vinnutengdan tölvupóst og tilkynningar og annan sem sýnir
einkatölvupóstinn þinn. Með þessum hætti þarftu ekki að
skoða vinnutengdan tölvupóst utan vinnutíma.
Til að skipta á milli heimaskjáanna skaltu velja .
Til að tilgreina hvaða atriði og flýtivísa þú vilt hafa á
heimaskjánum og til að stilla útlit heimaskjásins velurðu
Valmynd
>
Stjórnborð
og
Stöður
.