
Unnið á heimaskjánum
Til að leita að tengiliðum á heimaskjánum skaltu byrja að slá
inn nafn tengiliðarins. Veldu viðeigandi tengilið af lista yfir
mögulegar samsvaranir. Hugsanlegt er að þessi eiginleiki sé
ekki tiltækur fyrir öll tungumál.
Ýttu á hringitakkann til að hringja í tengiliðinn.
Til að hætta við leit að tengiliði velurðu
Valkostir
>
Slökkt
á tengiliðaleit
.
Móttekin skilaboð eru athuguð með því að fletta að
pósthólfinu í tilkynningasvæðinu. Veldu skilaboðin til að
skoða þau. Flettu til hægri til að opna önnur verkefni.
Ósvöruð símtöl eru skoðuð með því að fletta að
símtalahólfinu í tilkynningasvæðinu. Hringt er til baka með
því að fletta að símtali og ýta á hringitakkann. Textaskilaboð
eru send til þess sem hringir með því að fletta að símtali,
fletta til hægri og velja
Senda skilaboð
af lista yfir tiltækar
aðgerðir.
Til að hlusta á talskilaboðin flettirðu að talhólfinu í
tilkynningasvæðinu. Veldu talhólf og ýttu á hringitakkann.