
Helstu eiginleikar
Nýja Nokia E55 auðveldar þér að hafa umsjón með
vinnuupplýsingum þínum og persónuupplýsingum. Sumir af
helstu eiginleikunum eru tilgreindir hér:
Lestu og svaraðu tölvupósti á ferðinni.
Vertu vel upplýst(ur) og skipuleggðu fundi með
dagbókarforritinu.
Skipuleggðu vinnufélagana þína og vini með
tengiliðaforritinu.
Tengstu þráðlausu staðarnetni (WLAN) með
staðarnetshjálpinni.
Sýslaðu með skjöl, töflureikni og kynningar með
Quickoffice forritinu.
Finndu áhugaverða staði með kortaforritinu.
Skiptu á milli vinnu- og persónustillinga.
Breyttu útliti og uppsetningu heimaskjásins með
stillingaforritinu.
Skoðaðu innra net fyrirtækisins með
innranetsforritinu.
Færðu tengiliðaupplýsingar og upplýsingar í
dagbók úr eldra tæki yfir í Nokia E55 með
skiptingarforritinu.
Kannaðu hvaða uppfærslur eru í boði og sæktu
þær í tækið með forritauppfærslum.
Dulkóðaðu tækið þitt eða minniskortið til að
koma í veg fyrir að utanaðkomandi aðilar komist
yfir mikilvægar upplýsingar.