
Talað inn á rás eða við hóp
Til að tala inn á rás, þegar þú hefur skráð þig inn í kallkerfið,
skaltu ýta á kallkerfistakkann. Tónn gefur til kynna að
aðgangur sé veittur. Haltu kallkerfistakkanum áfram inni á
meðan þú talar. Slepptu takkanum þegar þú hefur lokið við
að tala.
Ef þú reynir að svara rás með því að ýta á kallkerfistakkann
þegar einhver annar er að tala, þá birtist
Augnablik
. Slepptu
kallkerfistakkanum, bíddu eftir því að viðmælandinn hætti að
tala og ýttu svo aftur á kallkerfistakkann. Einnig er hægt að
halda kallkerfistakkanum inni og bíða eftir því að
Talaðu
birtist.
Þegar talað er inn á rás fær sá orðið sem er fyrstur til að ýta
á kallkerfistakkann þegar einhver lýkur máli sínu.
Til að sjá virka aðila á meðan þú tekur þátt í samtali á rásinni
skaltu velja
Valkostir
>
Virkir meðlimir
.
Þegar kallkerfissímtalinu er lokið skaltu velja
Aftengjast
.
Til að bjóða nýjum aðilum að taka þátt í samtali velurðu
rásina þegar þú hefur komið á tengingu við hana. Veldu
Valkostir
>
Senda boð
til að opna boðskjáinn. Þú getur
aðeins boðið nýjum meðlimum að vera með ef þú ert
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
64

gestgjafi einkarásar eða ef rásin er almenn. Boð á rásir eru
textaskilaboð.
Þú getur einnig auglýst rásina þannig að aðrir viti af henni
og geti slegist í hópinn. Veldu
Valkostir
>
Senda boð
og
sláðu inn umbeðnar upplýsingar.