
Um kallkerfið
Kallkerfi (PTT) (sérþjónusta) er rauntíma talsímaþjónusta
sem notar farsímakerfið. Kallkerfi býður upp á bein samskipti
sem komið er á með því að ýta á takka. Notaðu kallkerfið til
að tala við einn aðila eða hóp af fólki.
Áður en kallkerfið er tekið í notkun þarf að tilgreina stillingar
fyrir það (aðgangsstað, PTT, SIP, XDM og viðveru).
Stillingarnar kunna að berast í sérstökum textaskilaboðum
frá þjónustuveitunni sem býður upp á kallkerfisþjónustuna.
Einnig er hægt að nota stillinga-hjálparforritið til að stilla
kallkerfið ef þjónustuveitan styður slíkt. Nánari upplýsingar
um kallkerfisforritið er að finna í notendahandbók tækisins
eða á vefsvæði Nokia í heimalandi þínu.
Í samskiptum gegnum kallkerfið talar einn aðili en hinir
hlusta gegnum innbyggða hátalarann.
Notendur skiptast á að svara hver öðrum. Þar sem aðeins einn
aðili getur talað í einu fær hann tiltekinn hámarkstíma.
Hámarkstíminn er venjulega 30 sekúndur. Hafðu samband
við þjónustuveituna til að fá upplýsingar um hvaða
hámarkstíma símkerfið veitir.
Símtöl hafa ávallt forgang fram yfir kallkerfi.