
Raddskipanir
Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Sími
>
Raddskip.
.
Raddskipanir má nota til að hringja og opna forrit, snið eða
aðrar aðgerðir tækisins. Til að hefja raddkennsl skaltu halda
inni „hljóð af“ takkanum.
Tækið býr til raddmerki fyrir færslur í tengiliðalistanum og
fyrir aðgerðirnar sem tilgreindar eru í raddskipanaforritinu.
Þegar raddskipun er borin fram ber tækið töluðu orðin saman
við raddmerkin sem eru vistuð í tækinu. Raddskipanir eru
ekki háðar rödd þess sem talar. Hins vegar laga raddkennslin
í tækinu sig að rödd þess sem mest notar tækið til að geta
betur greint raddskipanir.