
Hringja símtal
Raddmerki fyrir tengilið er nafnið eða gælunafnið sem er
vistað á tengiliðaspjaldinu í tengiliðalistanum.
Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið erfið
í hávaðasömu umhverfi eða í neyðartilvikum, því ætti ekki að
treysta eingöngu á raddstýrt val við allar aðstæður.
Til að hlusta á raddmerki velurðu tengilið og
Valkostir
>
Um raddmerki
>
Spila raddmerki
.
1. Haltu „hljóð af“ takkanum inni til að hringja símtal með
raddskipun.
2. Berðu skýrt fram nafn tengiliðarins þegar tónn heyrist eða
merki birtist á skjánum.
3. Tækið spilar tilbúið raddmerki fyrir tengiliðinn á því
tungumáli sem er valið og birtir nafn hans. Eftir 1,5
sekúndna biðtíma hringir tækið í númerið. Ef tækið valdi
rangan tengilið velurðu annan tengilið úr niðurstöðunum
eða
Hætta
til að hætta við að hringja.
Ef mörg númer eru vistuð fyrir tengiliðinn, velurðu
tengiliðinn og símanúmerið sem óskað er eftir.