Uppsetning á tölvupósti
Með tölvupóstuppsetningunni geturðu sett upp
fyrirtækispósthólf, t.d. Microsoft Outlook eða Mail for
Exchange og vefpósthólf.
Þegar fyrirtækjapósturinn þinn er settur upp gætir þú verið
beðin(n) um heiti miðlarans sem tengist tölvupóstfanginu
þínu. Hafðu samband við tölvudeild fyrirtækisins þíns til að
fá frekari upplýsingar.
1. Til að opna uppsetninguna velurðu
Setja upp
tölvupóst
á heimaskjánum.
2. Færðu inn tölvupóstfangið þitt og lykilorð. Ef ekki er hægt
að stilla tölvupóstinn sjálfkrafa í uppsetningunni þarftu
að velja gerð pósthólfsins og færa inn pósthólfsstillingar.
Ef tækið inniheldur fleiri tölvupóstbiðlara geturðu valið þá
þegar þú ræsir póstuppsetninguna.