margmiðlunarskilaboð
Veldu
Valmynd
>
Skilaboð
.
Aðeins tæki með samhæfar aðgerðir geta tekið á móti og birt
margmiðlunarskilaboð. Útlit skilaboða getur verið breytilegt
eftir móttökutækinu.
Margmiðlunarskilaboð (MMS) geta innihaldið texta, myndir,
hljóð og myndskeið. Áður en þú getur sent eða tekið á móti
margmiðlunarskilaboðum með tækinu þínu þarftu að færa
inn réttar stillingar fyrir margmiðlunarskilaboð. Tækið gæti
borið kennsl á söluaðila SIM-kortsins og fært sjálfkrafa inn
réttar stillingar fyrir margmiðlunarskilaboð. Ef svo er ekki
skaltu hafa samband við þjónustuveituna þína til að fá réttar
stillingar, panta stillingarnar hjá þjónustuveitunni í
stillingaboðum, eða nota stillingaforritið.