Nokia E55 - Öryggi tækis og SIM-korts

background image

Öryggi tækis og SIM-korts

Til að breyta PIN-númerinu velurðu

Sími og SIM-kort

>

PIN-

númer

. Nýja númerið verður að vera 4 til 8 tölustafir. PIN-

númerið fylgir SIM-kortinu og tryggir að óviðkomandi geti

ekki notað það. Ef rangt PIN-númer er slegið inn þrisvar

sinnum í röð lokast númerið og opna verður það með PUK-

númeri áður en hægt er að nota SIM-kortið aftur.
Til að læsa takkaborðinu sjálfkrafa eftir tiltekinn tíma velurðu

Sími og SIM-kort

>

Sjálfvirk læsing takka

.

Til að stilla eftir hversu langan tíma tækið læsist sjálfkrafa,

þannig að aðeins er hægt að nota það ef réttur læsingarkóði

er sleginn inn, velurðu

Sími og SIM-kort

>

Sjálfv.

læsingartími síma

. Sláðu inn tímann í mínútum eða veldu

Enginn

til að gera valkostinn óvirkan. Þegar tækið er læst er

áfram hægt að svara innhringingum og hugsanlega er áfram

hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í

það.
Til að velja nýjan læsingarkóða velurðu

Sími og SIM-kort

>

Læsingarkóði

. Forstillta númerið er 12345. Sláðu inn fyrra

númerið og svo það nýja tvisvar. Nýi kóðinn má vera 4-255

stafa langt. Hægt er að nota bæði tölu- og bókstafi og há- og

lágstafi. Tækið lætur þig vita ef eitthvað er rangt við númerið.