Nokia E55 - Símtalsstillingar

background image

Símtalsstillingar

Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Sími

>

Símtöl

.

Veldu úr eftirfarandi:

Senda mitt númer

— Birtir símanúmerið þitt þeim sem

þú hringir í.

Birta símanúmerið mitt

— Birtir netsímanúmerið þitt

þegar þú hringir netsímtal.

Símtal í bið

— Stilltu símann þannig að þú fáir tilkynningu

um símtöl sem berast þegar þú ert að tala í símann

(sérþjónusta).

Netsímtal í bið

— Stilltu símann þannig að þú fáir

tilkynningu um netsímtöl sem berast þegar þú ert að tala

í símann.

Netsímtalstónn

— Veldu

Kveikt

til að láta tækið tilkynna

um netsímtöl. Ef þú velur

Slökkt

færðu aðeins tilkynningu

um ósvöruð símtöl.

Hafna símtali með skilab.

— Hafna símtali og senda

textaskilaboð til þess sem hringir.

Texti skilaboða

— Skrifa stöðluð textaskilaboð sem eru

send þegar þú hafnar símtali.

Eigin mynd í mót. símtali

— Heimila eða hafna

myndsendingu á meðan myndsímtali stendur.

Mynd í myndsímtali

— Birta kyrrmynd ef myndsending

á sér ekki stað í myndsímtali.

Sjálfvirkt endurval

— Láta tækið gera allt að tíu tilraunir

til að hringja aftur í númer sem ekki náðist samband við.

Ýttu á hætta-takkann til að slökkva á sjálfvirka

endurvalinu.

Sýna lengd símtala

— Birta lengd símtals meðan á því

stendur.

Samantekt símtals

— Birta lengd símtals þegar því lýkur.

Hraðval

— Kveikja á hraðvali.

Takkasvar

— Kveikja á takkasvari.

Leit að tengiliði

— Virkja tengiliðaleit á heimaskjánum.

Lína í notkun

— Þessi stilling (sérþjónusta) sést aðeins

ef SIM-kortið styður tvær símalínur, þ.e. tvö númer í áskrift.

Veldu hvaða símalínu á að nota til að hringja og senda

textaskilaboð. Það er hægt að svara símtölum á báðum

línum, burtséð frá því hvor línan hefur verið valin. Ef þú

velur

Lína 2

en hefur ekki gerst áskrifandi að þessari

sérþjónustu geturðu ekki hringt úr tækinu. Þegar lína 2 er

valin birtist táknið þegar tækið er í biðstöðu.

Línuskipting

— Til að hindra að skipt sé á milli lína

(sérþjónusta), ef SIM-kortið styður það. Til að breyta

þessari stillingu þarftu að hafa PIN2-númerið.