
Kveikt á tækinu í fyrsta
skipti
1. Haltu rofanum inni þar til þú finnur tækið
titra.
2. Ef beðið er um það skaltu slá inn PIN-
númerið eða læsingarnúmerið og velja
Í
lagi
.
3. Ef beðið er um það skaltu slá inn borgina
þar sem þú ert staddur/stödd ásamt
tímanum og dagsetningunni. Sláðu inn
fyrstu stafina í nafni landsins til að velja
það. Mikilvægt er að velja rétt land þar
sem tímasett dagbókaratriði geta breyst
ef þú breytir landi síðar meir og nýja
landið er í öðru tímabelti.
4. Forritið Uppsetning síma opnast. Veldu
Byrja
til að setja
forritið upp. Ýttu endurtekið á
Sleppa
til að sneiða hjá
uppsetningarforritum. Til að opna forritið Uppsetning
síma síðar velurðu
Valmynd
>
Hjálp
>
Upps. síma
.
Notaðu hjálparforritin sem eru tiltæk á heimaskjánum og
stillingarforritið til að velja stillingar tækisins. Þegar kveikt er
á tækinu kann það að bera kennsl á símafyrirtæki SIM-
kortsins og velja einhverjar stillingar sjálfkrafa. Þú getur
einnig fengið réttar stillingar hjá þjónustuveitunni þinni.
Hægt er að kveikja á tækinu án þess að SIM-kort sé í tækinu.
Tækið ræsir sig í sniði án tengingar og ekki er hægt að nota
þær símaaðgerðir þar sem tenging við símkerfið er
nauðsynleg.
Slökkt er á tækinu með því að halda rofanum inni.