Lykilorð
Hafðu samband við þjónustuveituna þína ef þú gleymir
einhverjum af þessum aðgangsnúmerum.
• PIN-númer (Personal identification number) — Númerið
hindrar að SIM-kortið sé notað í leyfisleysi. PIN-númerið (4
- 8 tölustafir) fylgir yfirleitt með SIM-kortinu. Þegar PIN-
númerið er slegið rangt inn þrisvar sinnum er númerinu
lokað og þá þarf að slá inn PUK-númerið til að opna það.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
21
• UPIN-númer — Númerið kann að fylgja með USIM-kortinu.
USIM-kortið er endurbætt gerð SIM-korts til að nota í 3G-
farsímum.
• PIN2-númer — Númerið (4 - 8 tölustafir) fylgir sumum
SIM-kortum og er nauðsynlegt til að geta notað suma
valkosti tækisins.
• Læsingarkóði (einnig kallaður
öryggisnúmer) — Læsingarnúmerið hindrar að tækið sé
notað í leyfisleysi. Forstillta númerið er 12345. Hægt er að
búa til og breyta númerinu og láta tækið biðja um
númerið. Haltu nýja númerinu leyndu og á öruggum stað
fjarri tækinu. Ef þú gleymir númerinu og tækið er læst
þarftu að leita til þjónustuaðila. Þú getur þurft að greiða
viðbótargjald og persónulegum gögnum í tækinu kann að
verða eytt. Nánari upplýsingar færðu hjá Nokia Care
þjónustuveri eða söluaðilanum.
• PUK- og PUK2-númer — Þetta númer (8 tölustafir) er
nauðsynlegt til að breyta PIN-númeri eða PIN2-númeri
sem hefur verið lokað. Ef númerin fylgja ekki með SIM-
kortinu skaltu hafa samband við þjónustuveituna sem lét
þig fá SIM-kortið.
• UPUK-númer — Þetta númer (8 tölustafir) er nauðsynlegt
til að breyta lokuðu UPIN-númeri. Ef númerið fylgir ekki
með USIM-kortinu skaltu hafa samband við
þjónustuveituna sem lét þig fá USIM-kortið.
Ábendingar um