
Nokia PC Suite
Nokia PC Suite inniheldur ýmis forrit sem hægt er að setja upp
á samhæfri tölvu. Nokia PC Suite setur öll tiltæk forrit í
sérstakan glugga þar sem hægt er að keyra þau. Nokia PC
Suite fylgir hugsanlega með minniskortinu ef það fylgir með
tækinu.
Hægt er að nota Nokia PC Suite til að samstilla tengiliði,
dagbók, verkefni og aðra minnismiða milli tækisins og
samhæfs tölvuforrits, svo sem Microsoft Outlook eða Lotus
Notes. Einnig er hægt að nota Nokia PC Suite til að flytja
bókamerki milli tækisins og samhæfra vafra og flytja myndir
og myndskeið milli tækisins og samhæfrar tölvu.
Til athugunar: Skoðaðu stillingar samstillingar. Þær
stillingar sem eru valdar stjórna því hvort gagnaeyðing er
hluti af hefðbundinni samstillingu.
Til að nota Nokia PC Suite þarf tölvu sem keyrir á Microsoft
Windows XP (SP2) eða Windows Vista og er með USB-tengi
eða Bluetooth-tengingu.
Nokia PC Suite virkar ekki með Macintosh.
Nánari upplýsingar um Nokia PC Suite eru í hjálparhlutanum
eða heimasíðu Nokia.
Uppsetning Nokia PC Suite:
1. Gakktu úr skugga um að minniskortið sé í Nokia E55 .
2. Tengdu USB-snúruna. Tölvan finnur nýja tækið og setur
upp nauðsynlega rekla. Þetta getur tekið nokkrar
mínútur.
3. Veldu
Gagnaflutningur
sem USB-tengiaðferð í tækinu.
Tækið er merkt sem Removable Disk (laus diskur) í
möppuglugga Windows.
4. Opnaðu rót minniskortsins í möppuglugga Windows og
veldu uppsetninguna á PC Suite.
5. Þá hefst uppsetningin. Fylgdu leiðbeiningunum sem
birtast.
Ábending: Ef þú vilt uppfæra Nokia PC Suite eða ef
vandræði eru í uppsetningu Nokia PC Suite af
minniskortinu skaltu afrita uppsetningarskrána yfir á
tölvuna og ræsa hana þaðan.