
Minniskorti komið fyrir
Notaðu minniskort til að spara minni tækisins. Einnig er hægt
að taka afrit af upplýsingunum í tækinu og vista þær á
minniskortinu.
Aðeins skal nota samhæft microSD- og microSDHC-kort sem
Nokia samþykkir til notkunar með þessu tæki. Nokia styðst
við viðurkennda staðla fyrir minniskort. Þó getur verið að
sum kort sé ekki hægt að nota að fullu með þessu tæki.
Ósamhæf kort geta skaðað kortið og tækið og skemmt gögn
sem vistuð eru á kortinu.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
13

Geyma skal öll minniskort þar sem börn ná ekki
til.
Upplýsingar um samhæfni minniskorta fást hjá
framleiðanda þeirra eða söluaðila.
Samhæft minniskort gæti fylgt með frá söluaðila. Verið getur
að minniskortið hafi þegar verið sett í tækið. Ef ekki skaltu
gera eftirfarandi:
1. Stilltu tækinu þannig upp að bakhliðin snúi upp til að
koma í veg fyrir að rafhlaðan losni.
2. Fjarlægðu bakhliðina.
3. Settu minniskortið inn í raufina með snertiflötinn á
undan. Gakktu úr skugga um að snerturnar snúi að
tengjum tækisins.
4. Ýttu kortinu inn þar til það smellur á sinn stað.
5. Settu bakhlið tækisins aftur á sinn stað.