Rafhlaðan hlaðin
Rafhlaðan var hlaðin að hluta í verksmiðjunni. Ef tækið sýnir
að lítil hleðsla sé eftir skaltu gera eftirfarandi.
1. Stingdu hleðslutækinu í samband við innstungu.
2. Tengdu hleðslutengilinn við USB-tengið í tækið.
3. Þegar tækið sýnir að rafhlaðan er fullhlaðin skaltu fyrst
taka hleðslutækið úr sambandi við tækið og síðan úr
innstungunni.
Þú þarft ekki að hlaða rafhlöðuna í tiltekinn tíma og þú getur
notað tækið á meðan það er í hleðslu. Ef rafhlaðan er alveg
tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist
á skjánum eða þar til hægt er að hringja.
Hlaðið með USB-gagnasnúru
Hleðsla með USB-gagnasnúru er hægvirkar en þegar
hleðslutæki er notað. Ekki er víst að hægt sé að hlaða með
USB-gagnasnúru ef þú notar USB-deilibox. USB-deilibox eru
hugsanlega ósamhæf til að hlaða USB-tæki.
Hleðsla rafhlöðunnar með USB-gagnasnúru getur tekið
langan tíma ef engin hleðsla er á rafhlöðunni.
Þegar USB-gagnasnúra er tengd getur þú flutt gögn um leið
og þú hleður.
1. Tengdu samhæft USB-tæki við tækið með samhæfri USB-
snúru.
Það fer eftir tækinu sem notað er til hleðslu hve langur
tími líður þar til hleðslan hefst.
2. Ef kveikt er á tækinu skaltu velja velja úr tiltækum USB-
stillingum.