
Uppsetning á tölvupósti
Nokia Eseries tækið vinnur á sama tíma og þú og á sama
hraða. Samstilltu tölvupóstinn, tengiliði og dagbók - hratt og
auðveldlega með háhraðatengingu.
Þegar þú setur upp pósthólfið gæti verið beðið um
eftirfarandi upplýsingar: Notandanafn, gerð tölvupósts,
miðlara móttekins pósts, gátt miðlara fyrir móttekinn póst,
miðlara fyrir sendan póst, gátt miðlara fyrir sendan póst,
lykilorð og aðgangsstað.
Með póstuppsetningunni er hægt að setja upp
fyrirtækjapósthólf, t.d. Microsoft Exchange eða
vefpóstþjónustu á borð við Gmail. Hjálpin styður POP/IMAP og
ActiveSync samskiptareglur.
Ef þú ert að setja upp fyrirtækispóstinn þinn skaltu hafa
samband við tölvudeild fyrirtækisins þíns til að fá frekari
upplýsingar. Ef þú ert að setja upp vefpóst skaltu fara á
vefsíðu tölvupóstveitunnar þinnar til að fá frekari
upplýsingar.
Póstuppsetningin ræst:
1. Flettu að póstuppsetningunni á heimaskjánum.
2. Færðu inn netfangið þitt og lykilorð. Ef uppsetningin
getur ekki stillt tölvupóstinn sjálfkrafa þarftu að velja gerð
tölvupósthólfsins og færa inn tengdar pósthólfsstillingar.
Ábending: Ef þú hefur ekki stillt pósthólfið skaltu ýta
á tölvupóststakkann til að ræsa póstuppsetninguna.
Ef önnur póstforrit eru í tækinu standa þau til boða þegar
póstuppsetningin er ræst.