
Um þráðlaus staðarnet
Tækið getur fundið og tengst þráðlausum staðarnetum. Á
þráðlausu staðarneti er hægt að tengjast við internetið og
önnur samhæf tæki sem styðja þráðlaust staðarnet.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
118

Til að geta notað þráðlaust staðarnet þarf eftirfarandi:
• Þráðlaust staðarnet verður að vera tiltækt á staðnum.
• Tækið verður að vera tengt þráðlausa staðarnetinu. Sum
þráðlaus staðarnet eru varin og það þarf að fá aðgangsorð
hjá þjónustuveitunni til að geta tengst þeim.
• Internetaðgangsstaður þarf að vera gerður fyrir þráðlaust
staðarnet. Notaðu aðgangsstaðinn fyrir aðgerðir sem
krefjast tengingar við internetið.
Þráðlausri staðarnetstengingu er komið á þegar þú býrð til
gagnatengingu með því að nota netaðgangsstað. Þráðlausa
staðarnetstengin er rofin þegar þú lokar gagnatengingunni.
Hægt er að nota þráðlaust staðarnet meðan á símtali stendur
eða pakkagagnatenging er virk. Aðeins er hægt að tengjast
við einn aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet í einu, en
nokkur forrit geta hins vegar notað sama
internetaðgangsstaðinn.
Til athugunar: Í Frakklandi er aðeins heimilt að nota
þráðlaust staðarnet innanhúss.
Aðgerðir sem nota þráðlaust staðarnet eða leyfa slíkum
aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan aðrar aðgerðir eru
notaðar krefjast aukinnar rafhlöðuorku og minnka
endingartíma rafhlöðunnar.
Tækið þitt styður eftirtaldar í þráðlausu staðarneti:
• IEEE 802.11b/g staðalinn
• 2,4 GHz virkni
• WEP-dulkóðunarstaðall, Wi-Fi varinn aðgangur (WPA/
WPA2) og 802.1x sannvottunaraðferðir. Aðeins er hægt að
nota þessa valkosti ef símkerfið styður þá.
Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af tiltækum
dulkóðunaraðferðum til að auka öryggi þráðlausrar
staðarnetstengingar. Notkun dulkóðunar dregur úr hættunni
á því að einhver fái aðgang að gögnunum þínum án
heimildar.
Hægt er að nota þráðlausa staðarnetstengingu þrátt fyrir að
tækið sé í ótengdu sniði, ef það er í boði. Mundu að fara að
öllum viðeigandi öryggisreglum þegar þú kemur á og notar
þráðlausa staðarnetstengingu.
Ábending: Til að sjá MAC-vistfangið sem auðkennir
tækið þitt skaltu slá inn *#62209526# á
heimaskjánum.