
Um Bluetooth
Bluetooth-tækni í tækinu virkjar þráðlausar tengingar á milli
tveggja rafeindatækja sem eru í innan við 10 metra (33 feta)
fjarlægð frá hvort öðru. Hægt er að nota Bluetooth-tengingu
til að senda myndir, hreyfimyndir, texta, nafnspjöld,
minnismiða í dagbókum og til að tengjast við önnur tæki sem
nota Bluetooth-tækni.
Þar sem tæki sem nota Bluetooth-tækni hafa samskipti með
útvarpsbylgjum þurfa tækið þitt og tækið sem það er tengt
við ekki að vera staðsett beint á móti hvort öðru. Tækin tvö
þurfa einungis að vera í innan við 10 metra fjarlægð frá hvort
öðru. Truflanir geta þó orðið á tengingunni vegna veggja eða
annarra rafeindatækja.
Hægt er að hafa fleiri en eina Bluetooth-tengingu virka í einu.
Til dæmis er hægt að flytja skrár úr öðru samhæfu tæki þó að
það sé tengt við höfuðtól.
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0 + EDR
sem styður eftirfarandi snið: ítarleg hljóðdreifing (advanced
audio distribution), fjarstýring (audio video remote control),
grunnmyndir (basic imaging), grunnprentun (basic printing),
upphringisamband (dial-up networking), skráarflutningur
(file transfer), almennur aðgangur (generic access),
handfrjálst (hands-free), höfuðtól (headset),
mannviðmótstæki (human interface device), staðbundin
staðsetning (local positioning), vöktun (object push),
aðgangur að símaskrá (phonebook access), SIM-aðgangur
(SIM access), raðtengi (serial port), mynddreifing (video
distribution). Til að tryggja samvirkni milli annarra tækja sem
styðja Bluetooth-tækni skal nota aukabúnað sem eru
viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund. Leita skal
upplýsinga hjá framleiðendum annarra tækja um samhæfi
þeirra við þetta tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga á rafhlöðu símans
og draga úr endingu hennar.