Nokia E55 - Hröð pakkagögn

background image

Hröð pakkagögn

HSPA (High-speed packet access, en einnig kallað 3.5G,

táknað með

) er sérþjónusta í UMTS-símkerfum þar sem

boðið er upp á mjög hratt niðurhal. Þegar HSPA-stuðningur

er virkur í tækinu og tækið er tengt UMTS-símkerfi sem styður

HSPA er hægt að hlaða gögnum, svo sem tölvupósti og

vefsíðum, hraðar niður en ella. Virk HSPA-tenging er táknuð

með . Táknin kunna að vera mismunandi eftir svæðum.
Til að kveikja á HSPA velurðu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Tenging

>

Pakkagögn

>

Háhraða

pakkagögn

. Sum farsímakerfi leyfa ekki símtöl þegar kveikt

er á HSPA en í þeim tilfellum þarftu að slökkva á HSPA til að

svara símtölum. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Þjónustuveitan gefur upplýsingar um gagnaþjónustu og

áskrift að henni.