Nokia E55 - SIM-aðgangssnið

background image

SIM-aðgangssnið

Með SIM-aðgangssniðinu getur þú komist inn á SIM-kortið í

tækinu þínu um samhæfan bílbúnað. Þannig þarftu ekki

annað SIM-kort til að komast í upplýsingar á SIM-kortinu og

tengjast við GSM-símkerfi.
Til að nota SIM-aðgangssniðið þarftu eftirfarandi:
• Samhæfan bílbúnað sem styður þráðlausa Bluetooth-

tækni

• Gilt SIM-kort í tækið þitt
Þegar ytri SIM-stilling er virk í þráðlausa tækinu er aðeins

hægt að hringja og svara símtölum með samhæfum

aukabúnaði sem er tengdur við það (t.d. bílbúnaði).
Ekki er hægt að hringja úr þráðlausa tækinu þegar stillingin

er virk, nema í neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Eigi að hringja úr tækinu þarf fyrst að slökkva á ytri SIM-

stillingu. Ef tækinu hefur verið læst skal fyrst slá inn

lykilnúmerið til að opna það.
Nánari upplýsingar um bílbúnað og samhæfni við tækið þitt

má finna á vefsíðu Nokia og í notendahandbókinni fyrir

bílbúnaðinn.

SIM-aðgangssniðið notað

1. Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Tenging

>

Bluetooth

og

Ytra SIM

>

Kveikt

.

2. Gera Bluetooth-tengingar virkar í bílbúnaðinum.
3. Notaðu bílbúnaðinn til að hefja leit að samhæfum

tækjum. Leiðbeiningar er að finna í notendahandbók

bílbúnaðarsímans.

4. Veldu tækið þitt úr lista yfir samhæf tæki.
5. Sláðu aðgangskóða Bluetooth sem sýndur er á skjá

bílbúnaðartækisins inn í tækið þitt til að para tækin.

Ábending: Ef þú hefur þegar farið inn á SIM-kortið úr

bílbúnaðinum með virka notandasniðinu leitar

bílbúnaðurinn sjálfkrafa að tæki með því SIM-korti. Ef

það finnur tækið þitt og virkjar leyfið sjálfvirkt tengist

bílbúnaðurinn sjálfkrafa við GSM-símkerfið þegar þú

ræsir bílinn.

Þegar snið fyrir ytri aðgang að SIM-korti hefur verið virkjað

getur þú notað forrit á tækinu þínu sem þurfa ekki tengingu

við símkerfi eða SIM-þjónustu.
Til að koma á tengingu milli tækisins þíns og bílbúnaðarins

án þess að samþykkja það sérstaklega velurðu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Tenging

>

Bluetooth

og opnar flipann fyrir

pöruð tæki. Veldu bílbúnaðinn og

Stilla sem heimilað

og

svaraðu

til að staðfesta fyrirspurnina. Ef bílbúnaðurinn er

stilltur sem óheimill verður að samþykkja tengingar í hvert

sinn.
Til að ljúka ytri SIM-aðgangstengingunni úr tækinu þínu

skaltu velja

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Tenging

>

Bluetooth

og

Ytra SIM

>

Slökkt

.