Nokia E55 - Stafræn réttindi

background image

Stafræn réttindi

Stafræn réttindi
Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir stafrænnar

réttindatækni (DRM) til að vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t.

höfundarrétt. Þetta tæki notar mismunandi gerðir

stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni. Með þessu

tæki er hægt að opna efni sem verndað er með WMDRM 10

og OMA DRM 2.0. Ef tiltekinn stafrænn hugbúnaður nær ekki

að verja efni kunna efniseigendur að biðja um að geta slíks

hugbúnaðar til að opna nýtt efni sem er varið með stafrænni

réttindatækni sé endurvakin. Slíkt kann einnig að hindra

endurnýjun þess stafræns varins efnis sem er þegar í tækinu.

Endurvakning slíks hugbúnaðar hefur ekki áhrif á notkun

efnis sem er verndað með öðrum gerðum stafrænna réttinda

eða notkun efnis sem ekki er verndað með stafrænum

réttindum.
Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir leyfi

sem tilgreinir hvernig hægt er að nota efnið.
Ef tækið er með OMA DRM-varið efni skal nota

öryggisafritunaraðgerðina í Nokia PC Suite til að taka

öryggisafrit af bæði leyfum og efninu.
Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni ásamt

leyfi þess ef minni tækisins er forsniðið. Einnig gæti leyfið og

efnið glatast ef skrár í tækinu skemmast. Glatist leyfið eða

efnið getur það takmarkað möguleikann á að nota efnið

aftur. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Sum leyfi kunna að vera tengd tilteknu SIM-korti og aðeins er

hægt að fá aðgang að varða efninu ef SIM-kortið er í tækinu.