
Ígrædd lækningatæki
Framleiðendur lækningatækja mæla með því að 15,3
sentímetra (6 tommu) lágmarksbil sé haft á milli þráðlauss
tækis og ígrædds lækningabúnaðar, eins og gangráðs eða
ígrædds hjartarafstuðstækis til þess að komist sé hjá
hugsanlegri truflun í lækningabúnaðinum. Einstaklingar með
slíkan búnað ættu:
• Alltaf að halda tækinu í meira en 15,3 sentímetra (6
tommu) fjarlægð frá lækningatækinu.
• Ekki að ganga með þráðlausa tækið í brjóstvasa
• Halda þráðlausa tækinu að eyranu sem er fjær
lækningatækinu.
• Ef grunur leikur á að truflun sé að verða skal slökkva á
þráðlausa tækinu.
• Fylgja skal leiðbeiningum framleiðanda
lækningatækisins.
Ef þú hefur spurningar um notkun þráðlausa tækisins með
ígræddum lækningabúnaði skaltu hafa samband við
heilbrigðisstarfsfólk.